Færsluflokkur: Spaugilegt

Chris Kaman: "Hann greip í punginn á mér"

Chris KamanFörum aðeins aftur í tímann og endurheimsækjum eitt atvik. Umrætt atvik gerðist í fyrstu umferð úrslitakeppninnar árið 2006, þar áttust við L.A. Clippers og Denver Nuggets. Atvikið átti sér stað á milli Chris Kaman leikmanns Clippers og Reggie Evans þáverandi leikmann Denver Nuggets, þeir tveir voru að berjast um frákast og þar að leiðandi um stöðu undir körfunni, Evans beitti þá skemmtilega óíþróttalegu bragði eins og sést hér í vídjóinu. Einnig má sjá í því viðtal við Kaman þar sem hann er spurður út í þessa lífsreynslu :

Eins og sést líka í vidjóinu halda félagarnir í þættinum Inside The NBA vart í sér hlátrinum þegar þeir sjá vídjóið aftur og aftur. En þess má geta að Clippers vann umferðina við Denver, en Clippers hafa ekki komist í úrslitakeppnina síðan þetta ár.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband